Ég fór í Sambíó á Laugardaginn á American Pie 2 og allt í lagi með það en á meðan ég var að bíða kom upp skjáauglýsing sem sagði frá því að Godfather pakkinn kæmi í búðir fimmtudaginn 18. október. Þá er bara að bíða og sjá hvort þeir hjá Sammyndbönd standa við þetta því þeir eru ekki mikið fyrir að standa sig vel í útgáfumálum…