Ég var að kaupa nokkrar myndir í dag og kom heim með pokann. Systir mín (13 ára) spurði hvað þetta væri. Ég sagði “Myndir”. Hún byrjaði að taka þær upp úr pokanum. Fyrst Sin City svo Saving Private Ryan þá horfði hún á mig og sagði: “Þú ert með ömurlegan kvikmyndasmekk.”

Takk fyrir það.

P.S. Hvaða mynd hlakkið þið mest til að komi í bíó af öllum sem er verið að gera?. Í næstu viku eða 2009 skiptir ekki máli hvenær þær koma