Ég rakst á doldið skemmtiegt en eitthvað sem ruglaði mig doldið http://www.imdb.com/List?certificates=Iceland:(Banned)&&heading=14;Iceland:(Banned) þetta er linkur að myndum sem eru bannaðr á Íslandi, þarna eru titlar eins og children of the corn, friday the 13th, Hellraiser, The evil dead, the evil dead 2, einhverjar halloween myndir og svo einhverjar freddy myndir. Nú það sem ruglar mig doldið við þennan lista er að ég hef séð allar þessar myndir á videoleigum á Íslandi og einhverjar af þeim í búðum. Er þetta bara eitthvað kjaftæði hjá Imdb eða erum við íslendingar að brjóta einhverjar reglur?