Fólk hefur greinilega fengið skyndilegan metnað fyrir könnunum. Það verður tekið til greina. Ég gerði kork einhvern tímann þar sem ég bað fólk að taka kannanirnar í gegn en því var aldrei sinnt og ég gafst upp á að setja könnunarsamþykktum einhver takmörk.
Næsti mánuður er bókaður með fyrirfram samþykktum könnunum en ég vil biðja þá sem lesa þetta um að vanda kannanirnar, bæði að hafa málið rétt og hafa stóra stafi þar sem þeir ættu að vera. Einnig senda innihaldslega markverðar kannanir. Og hingað til held ég að enginn hafi haft rétta beygingu á persónufornafninu í samböndunum mig langar, ég hlakka o.s.frv. Þið vitið þá núna að kannanirnar verða settar í gegnum síu.
Nafnið er upphaflega “spálinn”. Þannig var það að ég og félagi minn vorum að skokka á fótboltaæfingu og sáum hópinn sem var á undan okkur á æfingu vera að spila. Þá droppaði ég setningunni: “Er það spálinn?” og nafnið festist.
Núna gætirðu spurt hvernig mér hafi dottið í hug að segja þetta. En þetta var á þessu tímabili þegar það var kúl að bera orðin fram með afbrigði af flámæli.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..