Ég á móður sem hefur rosa gaman að því að horfa á kvikmyndir og sérstaklega gamla góða smelli.
Ein af þessum myndum heitir American Dreamer, með JoBeth Williams í aðalhlutverki.
Þessi mynd er orðin svo slitin að hana langar fá hana nýja, og þá kemur vandamálið, hún á afmæli bráðum og þetta væri svo frábær afmælisgjöf, hefur einhver hugmynd um hvar er hægt að finna þessa mynd.

American Dreamer
JoBeth Williams og Toni Conti
Leikstjóri Rick Rosenthal
Frá 1984
Í grófum dráttum um bandaríska heimavinnandi húsmóður sem tekur þátt í keppni og vinnur, fer til Parísar. Þat rotast hún og heldur að hún sé persóna úr bók: Rebecca Ryan.

Hjálp!! Þið eruð mín eina von