Ice Age 2 Ég var á Ice Age 2 á laugardaginn. Bjóst ekki við miklu af þessari mynd enda fannst mér aldrei gaman að horfa á Ice Age. En ég get svo svarið það, þessi mynd kom mér svakalega á óvart. Myndin var góð að mínu mati frá upphafi til enda, góður söguþráður og alltaf með reglulegu millibili íkorninn frægi að reyna að ná í hnetuna. Þessi mynd var með þeim betri teiknimyndum sem ég hef séð og mæli ég með því að allir fari á hana.