Ég er nokkuð viss um að þráður sem þessi hefur verið gerður hérna áður…og þá bara sleppiði að svara þessum. Ég hef allavega ekki séð slíkan…

En ég var semsagt að spá hversu margar (ef einhverjar) af Bottom 100 kvikmyndum imdb.com Hugarar hafi séð?

Hérna er slóðin: http://www.imdb.com/chart/bottom

Ég viðurkenni fúslega að hafa séð 2… Spice World og Crossroads. :D Taka verður með í þetta að ég var 10 ára þegar ég sá Spice World og um fermingu þegar ég sá Crossroads…
'The entire Fleet knows that this man tried to stab me through the neck. And you missed! Butterfingers!'