Oft þegar ég er að flakka í mestu makindum á imdb kemst ég ekki hjá því að rekast á þræði sem bera titilinn “Overrated!!!!!” eða “That movie sucked” á myndum sem svona langflestum finnst vera frábær verk. Margir eru auðvitað hálfvitar þara og búa til þráð til að fá einhver viðbrögð en segjum að einhver geri þráð á The Godfather, mynd sem langflestir eru sammála um að sé með þeim betri, og skýri hann já “Overrated!!!”. Hvernig getur mynd sem svona 90% allra sem hafa séð hana finnst vera meistaraverk verið ofmetin? Myndir eins og The Godfather eru ekki ofmetnar, það eru einhverjir imbar (ég viðurkenni það fúslega að það eru klassískar myndir sem ég fíla ekkert rosalega en þær eru ekki ofmetnar í mínum augum) sem finnast góðar myndir vera ofmetnar baaara af því að þeim fannst hún vera slöpp. Það eru hins vegar margar myndir sem talist gætu ofmetnar, Gladiator er gott dæmi. Það eru mun fleiri sem finnst Gladiator vera slöpp mynd heldur en Godfather þannig það má alveg deila um það hvort Gladiator sé ofmetin en í mínum heimi er það bara þannig að myndir í sama gæðaflokki og The Godfather, Ben-Hur, Apocalypse Now og Schindler's list eru ekki ofmetnar! Þó að þér finnist þessar myndir lélegar eða hafi ekki staðið undir væntingum þá eru myndir á þessum kalíber ekki ofmetnar. Hvað finnst þér? Er Godfather ofmetin af því að þér fannst hún vera léleg?