Áhugaverð grein inni á AICN í dag 11.8.
Harry segist hafa talað við Quentin Tarantino í síma og lætur hann ýmsar upplysingar af hendi. fyrir þá sem ekki nenna að lesa þetta <A HREF="http://www.aintitcool.com/display.cgi?id=9830">hér<A/> þá er það helst að vita að QT er að bíða eftir að Uma Thurman komi úr barneignarfríi svo hann geti byrjað að taka upp Kill Bill með henni og öðrum fastagestum úr fyrri myndum. Hann hyggst taka upp Kill Bill og aðra mynd sem heitir Glorious Bastards ‘back2back’ eða báðar í einu, svipað og Wachowski bræður eru að gera með Matrix. Við ættum þá að fá að sjá báðar þessar myndir 2003. En kíkið á þetta, þetta er fín lesning.