Ég skellti mér á þessa mynd í gærkvöldi, og ég verð að segja að þetta er alveg frábær mynd.
Heath Ledger fer á kostum sem kvennagullið Casanova og Sienna Miller er rábær í hlutverki sínu sem ung kona sem berst fyrir auknum réttindum kvenna.
Þegar ég settist í salinn bjóst ég við mikilli stórmynd, og ég varð svo sannarlega ekki fyrir vonbrigðum,hún er rómantísk og fyndin í senn.
Endirinn kemur skemmtilega á óvart, og ég hvet alla sem að hafa áhuga á dramatískum en samt sem áður nokkuð fyndnum ástarmyndum, að skella sér við fyrsta tækifæri, því að þetta er mynd sem að má ekki missa af.
Gef henni 4 1/2 af 5