Djöfull er maður ánægður, vaknaði í morgun, athugaði emailið og fékk lítið af emailum, einungis 139 stikki, þakkaði guði fyrir ADSL, þakkaði guði fyrir því að ég hafði eitt klukkutíma í að gera reglur fyrir í hvaða möppu email eiga að fara í, lít á inboxið, email frá Thorarinn Thorarinssyni og hvað stendur þar annað en
Til hamingju.
Nafn þitt var dregið úr hópi þeirra sem skráðu sig í Jurassic Park III leikinn á Strikinu fyrir föstudaginn 27. júlí og þú færð því boðsmiða fyrir tvo á sérstaka forsýningu á Jurassic Park III sem verður haldin í Háskólabíói sunnudaginn 29. júlí klukkan 20.00. ATH: Miðinn gildir aðeins á þessa einu sýningu.
Góða skemmtun.
Þú getur sótt miðann þinn (gefur upp nafn og email) í Japis búðina í Top Shop í Lækjargötu frá og með föstudeginum 27. júlí 2001.
Ég gerði nátturulega það sem allir mundu gera í mynni stöðu, hoppaði upp í bíl, núna sit ég hér með miðana i hendinni og get ekki beðið eftir sunnudeginum.
Kveðja sbs