sæl veriði

um daginn fékk ég flash back af mynd sem ég hafði séð þegar ég var lítill, man voðalega lítið hvað gerðist í þessari mynd, en næ henni bara ekki úr hausnum á mér, langar svo að sjá hana aftur, svona þegar maður er orðinn stór og veit um hvað hlutirnir snúast.

ég man að myndin fjallar um ferð 1 dollara seðils, minnir að hann byrji í einhverjum banka eða eitthvða, og svo er honum fylgt í gegnum alla myndina þangað til hann endar aftur á sama stað.

vona að einhver af ykkur kvikmyndaunendum getið hjálpað mér að finna nafnið á þessari mynd :)