Ég ætla að byrja að segja að ég er ekki hrifin af hryllingsmyndum því þær eru bara einfaldlega leiðinlegar. Oftast lélegur söguþráður og svo þegar koma einhverjar myndir sem eru frumlegar, Saw, þá eru þær heldur ekkert spes. Vá big deal, hann drepur ekki beint manneskjurnar.
En allavega, var að enda við að horfa á þessa mynd á Stöð 2 bíó og aftur….ég skil ekki hvað er svona gaman við þetta. Fólk horfir á þetta til þess að hræða sig en ég verð bara aldrei hræddur. Brá ekki einu sinni þegar marr sá fyrstu dauðu manneskjuna í skápnum í ‘The Ring’ þó að allir aðrir í kring öskruðu. Þessi mynd á víst að vera ein besta hryllingsmynd sem hefur verið gerð hef ég heyrt og trúðurinn átti að vera voða fyndinn en allt kom fyrir ekki.
Þessi korkur gæti svo sem líka átt heima í ‘nöldur’ en ég vil gjarnan fá að vita hvað ykkur finnst skemmtilegt við þetta.
“There's no such thing as stupid questions, just stupid people.”