Ég var að horfa á Underworld núna rétt áðan og alveg er þessi mynd nú meiri snilldin… Kom reyndar upp smá ágreiningur um hvort vampírur væru með spegilmynd yfir höfuð eða hvort það væri bara fyrir framan spegla.
Myndin endaði þannig að það hlyti að koma framhald, en nú eru einhver 2 (hugsanlega fleirri) ár liðin frá því að hún kom út og ég hef ekkert heyrt af því hvort þeir hefðu hugsað sér að gera númer 2. Vona bara að einhver þarna úti viti af því.
“Can´t rain all the time” - Brandon Lee