Tvö atriði:
Ég las í einhverju blaði að American Pie 2 væri á leiðinni. American Pie fannst mér persónulega snilld og þó að ég sé soldið stressuð yfir að framhaldsmyndin verði miklu verri einsog oft gerist, myndi ég vilja sjá hana. Veit einhver hvenær númer tvö verður sýnd?
Í sama blaði las ég að áætluð væri framhaldsmynd af annarri mynd í lægri gæðaflokki, Scary Movie. Númer eitt var, öfugt við American Pie, engin snilld, en ágætis leið til að drepa tímann og með einum og einum fyndnum aulabrandara. Veit einhver hvenær númer tvö af Scary Movie verður sýnd?
Ég þakka áheyrnina…