Vá, ég var að sjá þessa mynd í fyrsta skiptið og ég verð bara að segja það að mér finnt hún soldið “Overrated”. Okey, ég viðurkenni það að hún er mjög flott, reyndar þegar ég hugsa um það þá var hún allveg ótrúlega flott og allt frábært við hana… nema eitt.. Mér fannst hún allveg svakalega langdregin.. eiginlega of langdregin. Alls ekki leiðinleg mynd, ekki misskylja mig, myndin er góð, bara heldur langdregin. Kannski var ég bara að búast við of miklu? Ég held það einfaldlega, en annarst þá fannst mér þetta bara vera mynd rétt yfir meðallagi, en alls ekki eins góð og sagt er.

Mín skoðun.