Ég er soldið ánægður með nýja Bíóblaðið sem á að koma inn um lúguna mánaðarlega hjá borgarbörnunum. Skemmtilegar greinar og spjall um hitt og þetta tengt bíó. Líka greinar um múmíu- og fjöldamorðingjamyndir. Svo auðvitað slatti af auglýsingum, en það er sosum skiljanlegt þar sem blaðið er frítt. Svo er sagt hvenær myndir eru frumsýndar, mánuð fram í tímann. Gott framtak!!!!!1