Þegar ég var útá Portúgal sennilega árið 1999 sá ég í sjónvarpinu vægast sagt áhugaverða mynd sem ég hafði aldrei heyrt um áður og sá heldur ekki byrjunina þannig að ég veit ekki hvaða mynd þetta er. Í aðalhlutverkum voru Jackie Chan, Sylvester Stallone, Whoopie Goldberg og Eric Idle. Eric lék leikstjóra sem var að gera hina fullkomnu kvikmynd sem átti að hafa fullkomið jafnvægi af hasar, spennu og gríni en Jackie, Sly og Whoopie áttu víst að vera sigurblandan. Svo missti Eric vitið og gróf myndina eða eitthvað álíka.

Ég hef leitað mikið að þessari mynd, en finn hana ekki hjá neinu þeirra í imdb. Er einhver hérna sem veit um hvaða mynd ég er að tala?
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _