Ég er nýflutt heim frá Bretlandi þar sem ég notaði DVD póstleigur mjög mikið. Mig minnir að ég hafi lesið það fyrir nokkrum vikum/mánuðum á mbl.is að það væri fyrirtæki að byrja með dvd póstleigu hérna heima en ég heyrði svo ekkert meira um það og get ekki fundið neinar upplýsingar um þetta.

Veit einhver hvort þetta sé byrjað, í startholunum eða hvort þeir hættu við þetta???