Ég verð bara að segja að hún kom mér virkilega á óvart.

Ég bjóst við einhverri ógeðfelldri afbökun á bókunum, sem ég er sem betur fer ekki búinn að lesa of mikið af (Fólk er aðallega að nöldra yfir ósamræmi í söguþráðum úr bókunum yfir í myndina), en söguþráðurinn var nokkuð þéttur, og notaði í raun bara hugmyndir úr bókunum í staðinn fyrir að tjasla einhverju saman eins og var gert í Hellboy.

Hvað fannst ykkur um hana?