Ég keypti mér Memento á dvd þegar ég var í London fyrir 3 árum sem er ekki frásögufærandi nema fyrir tilstilli þess að eitt af aukaefninu sem á að vera á disknum finn ég ekki. Ég hef gert nokkrar tilraunir til að finna það á disknum en það hefur aldrei tekist.
Það stendur framan á hulstrinu; Exclusive hidden feature: “The Beginning of the End”
Ég á semsagt að geta spilað myndina aftur á bak sem er auðvitað skemmtilegt ef ég gæti en ég er það lélegur á þetta að ég er ekki enn búinn að fatta þetta, 3 árum síðar. Annrrs hef ég ekkert minnst neinn svefn útaf þessu en mig langar bara að kunna þetta.
Þess vegna spyr ég;
Er einhver þarna úti sem á þennan disk sem kann þetta?
Er einhver sem kann þetta bara?
Endilega að svara ef þið vitið svarið.