Ég á bara PS2, á engan DVD spilara (allavega ekki ennþá) og mig langar til að spyrja ykkur, þar sem það er nú ekki langt síðan ég uppgvötaði að það væri munur á DVD diskum (region 1 & 2), hvort væri betra að kaupa reg 1 eða 2.
Svo er það annað mál, í sambandi við talsettar barnamyndir, ég heyrði einhversstaðar að ef keypt væri mynd með t.d dönsku tali þá væri hægt að breyta því í íslenskt tal.
Er það rétt eða er ég svona ófróð um DVD?

Kv,
Pernilla