Ég keypti fyrir nokkrum mánuðum DVD spilara (philips) í fríhöfninni.
Hann hefur virkað ágætlega, og núna nýlega keypti ég mér DVD mynd á amazon.
Þetta er auðvitað bandarísk mynd, en mig minnti að spilarinn ætti að geta spilað það.

Síðan fékk ég myndina í dag, en þegar ég reyni að horfa á hana stóð bara “Wrong Region”.
Fyrir einhvern asnaskap er ég búin að týna leiðarvísinum sem fylgdi með, þannig að ég get ekki athugað það.
Þannig að nú spyr ég ykkur, er möguleiki á því að það sé bara eitthvað sem þarf að gera við spilarann áður en myndin er spiluð, eða er alveg víst að hann geti ekki spilað hana?