Eins og tið vitið tá gerist Lord Of The Rings í Miðgarði þar sem úir og grúir af skrítnum verum sem margar hverjar búa yfir sínum eigin sérstæðu hæfileikum. Frodo Baggins er ungur hobbiti sem fær það verk í hendurnar að koma galdrahring einum fyrir kattarnef, en það er einungis hægt að gera með því að kasta honum í eldgíg þann sem hann kom upprunanlega úr. Frodo neyðist því til að halda ásamt föruneyti sínu yfir fjöll, dali og óvinasvæði, stöðugt eltur af illum verum sem eru útsendarar myrkrahöfðingjans Saurons, en hann vill ná hringnum á sitt vald til að efla mátt sinn og megin. Þetta ferðalag Frodos og félaga hans á eftir að verða viðburðaríkt í meira lagi og vart líður sá dagur að hann og menn hans séu ekki í stórkostlegri lífshættu. En þótt Frodo sé smár vexti býr hann yfir ótrúlegu hugrekki og staðfestu sem gerir honum kleift að sigrast að næstum því hvaða hættu sem verður í vegi hans.

Enn núna fylgir heill diskur af aukaefni við erum að tala um eitthvað í kringum 6-8 af aukaefni.