ég var að horfa á trailer úr myndinni The son of the mask eða The Mask 2 og er er vægast sagt snar-fudgingvitlaus!! þetta er algjör svívirða við fyrri myndina og er gjörsamlega algjörlega ömurlegt! trailerinn sýnir lítið barn sem hoppar og skoppar um allt og er samt ekki með grímu, og einhvern hund með grímuna og er eikkað að hoppa og þetta lítur út eins og markaðshópurinn sé 4 ára börn.
ég sem elskaði fyrri myndina svo mikið og svo sé ég þessa vitleysu sem er bara móðgandi og mæli ég alls ekki með því að þið sjáið þessa mynd, þó svo að ég hafi bara séð trailer. og eflaust er leikaraúrvalið ekki gott þó svo að mörgum finnist Jamie kennedy sniðugur þá er hann nú enginn Jim carey…. og myndin er frá sömu og gera cats and dogs sem er ekki til að skella á hana gæðastimpil að mínu mati.
allt er mjög barnalegt í útliti og eikkað voðalega disney-legt. og að mín mati ömurlegt!!! ég er ekki sáttur!!!! og mun ekki fara á hana í bíó-=punktur=-