Ég hef verið að velta einu fyrir mér. Nú er ég með DVD söfnunaráráttu (frík eiginlega) og er búinn að sanka að mér yfir 80 titlum, ætli maður geti selt eitthvað af þessu hér á íslandi? Það eru náttlega nokkrir diskar í þessu safni sem ég sé ekki fram á að horfa á oftar, td. Patton, Hellraiser, Lolita, Mad Max, Educating Rita, The Ipcress File og fleiri frambærilegar myndir. Ég ætlaði nú að kíkja í vídeósafnarann um daginn er þar var lokað þótt opnunartími væri ekki liðinn :( Ætli séu einhverjir gaurar að versla með þetta í kolaportinu sem myndu kaupa af manni notað? Hvað ætli mar fái fyrir notaðan disk í óaðfinnanlegu standi? Veit einhver hvar er best að koma þessu í verð? Með bestu þökk.