….ef þú færir ekki í bíó.

Rakst um dagin á nokkur gömul undirtónablöð og í þeim voru upplýsingar sem við myndum ekki vita ef við færum ekki í bíó og ég ætla þess vegna að varpa þessum sannleik á huga.

1. Á meðan lögreglurannsókn stendur er alltaf nauðsynlegt að heimsækja strippstað.

2. Öll símanúmer í bandaríkjunum byrja á 555.

3. Flestir hundar eru ódauðlegir.

4. Ef þú ert eltur af sveittum mafíósum eða sovéskum njósnurum á götum úti, er alltaf hægt að skjótast inn í 17. júní skrúðgöngur…allan ársins hring.

5. Allir innkaupapokar innihalda eitt langt snittubrauð.

6. Það geta allir lent flugvélum ef þeir fá leiðbeiningar frá flugumferðarstjóra.

7. Þegar varalitur er settur á varirnar, þá fer hann aldrei af, jafnvel þó viðkomandi sé að kafa.

8. Loftræstikerfi háhýsa er fullkominn felustaður. Engum dettur í hug að leita að þér þar og þú getur án erfiðleika farið á hvaða stað sem e í bygginguni og sinnt þínum óþokkaverkum.

9. Ef þú þarft að hlaða byssuna þína, áttu alltaf nóg af skotfærum, þó þú hafir ekki verið með skotfæri áðan.

10. Þú lifir af allar orrustur í stríði, nema auðvitað að þú sért svo vitlaus að veifa um mynd af kærustunni þinni sem bíður heima.

11. Ef þú dulbýrð þig sem þýskan ofursta, er ekki nauðsynlegt að tala þýsku, þú talar bara með lélegum þýskum hreim.

12. Eifell turninn sést frá hvaða svölum sem er í París.

13. Karlar sýna engin sársaukamerki þegar þeir eru barðir í hakk og lasagna, en væla strax og konur gera að sárum þeirra.

14. Ef einhverstaðar glittir í gluggarúðu, eru miklar líkur að einhver fái að fljúga í gegnum hana.

15. Þegar þú borgar fyrir leigubíl, er nóg að bara að í einhvern seðil í veskinu og það er akkúrat fyrir farinu.

16. Ólíkustu verur heims geta alltaf erfðagfæðilega eignast afkvæmi.

17. Ljósin í eldhúsinu virka ekki á nóttunni. þú verður að opna ísskápinn og nota birtuna úr honum.

18. Konur sem gista í draugahúsi, skulu tafarlaust rannsaka öll grunsamleg hljóð í mjög efnislitlum eða gagnsæjum fötum.

19. Húsmæður elda alltaf egg á morgnanna, þrátt fyrir það að engin hafi tíma til að borða þetta.

20. Bílar sem lenda í árekstrum munu vafalaust springa í tætlur.

21. Bestu löggurnar fá alltaf 48 tíma til að leysa málið, ef að þeim er þá ekki vikið undan störfum á meðan rannsókn stendur yfir.

22. Sá sem fær martröð vaknar annað hvort sveittur eða öskrandi, eða bæði.

23. Það er ekki nauðsynlegt að byrja og enda símtöl á “Halló” og “Bless”.

24. Þó að kalt sé á Íslandi virðast íbúarnir alltaf hafa meiri þörf fyrir að afklæðast og striplast annað slagið.

25. Fréttir í sjónvarpi varða þig alltaf persónulega og birtast alltaf um leið og kveikt er á sjónvarpinu.

26. Rafmagns girðingar sem drepa risaeðlur, virðast ekki valda átta ára börnum neinum varanlegum skaða.

To be continued…
Þess má geta að ég er ekki kynþáttahatari, ég hata alla jafnt.