Ég var að sjá þessa mynd núna um helgina, hún var á sýn. Því sem ég varð fyrir mætti best lýsa sem trúarlegri upplifun. Þetta er stórkostleg mynd, eitthvað sem allir ættu að sjá, nema lítil börn og viðkvæmar sálir, endirinn er ógeð í hæsta lagi.
Þessi mynd er samt 9 ára gömul og ekkert lagt í brellurnar, heldur ekki bestu myndgæði sem þekkjast, en myndin ristir djúpt.
Ég ætla ekkert að spoila neinu en ég hvet alla til að spyrja um hana næst þegar þið leigið.
Sáu fleiri þess mynd? Hvað finnst ykkur?
Ég segi 3 stjörnur af 4.