Fyrir nokkrum árum sá ég mynd í Háskólabíó sem heitir Den siste time og var þetta ein besta mynd sem ég hef séð. Ég hef verið að leita af henni núna í þó nokkurn tíma og langar mig til að eignast hana, helst á DVD. Hins vegar finn ég hana hvergi á sölu. Veit einhver hérna hvar er best fyrir mig að leita? Ég hef prófað Skífuna og Amazon en ekkert gerist. Allar uppástungur eru velkomnar.