Ég fór að sjá charlies angels :full throttle um helgina og ég var mjög leiður að sjá þessa hörmung.

Í myndinni eru skemmtilegir grínistar eins og bernie mac og matt le blanc og svona sem halda djókinu uppi en þessi mynd er bara þvílikt óraunveruleg þvæla.Það mætti halda að þetta sé matrix.

Ástæður
1.Stelpurnar hoppa svona 5metra upp í loftinu, dodga byssukúlur eins og boris the bulletdodger.

2.Mótorhjólaatriðið var rugl.Gaur hoppaði af hjólinu skaut úr 2 skammbyssum *lengi* og sast aftur á.Hann gerði það tvisvar sem er nú meira ruglið.

3.Írski mafíosinn labbar bara í gegnum stórann eld og þessi gaur er alltaf smyrður af latex eða einhverjum viðbjóði.

Allavega góðir leikarar í þessari mynd en því miður hæðilega niðurdrepandi að sjá þessa góðu leikara í svona lélegri mynd.

stjörnur *

þetta er allavega mitt álit en hvað er þitt?