ég var um daginn að horfa á fyrstu terminator myndina og ég byrjaði að pæla. Í fyrsta lagi þá skil ég ekki af hverju þeir sem senda terminatorana til nútíðarinnar, senda þá ekki þegar þau sem þeir vilja drepa eru börn eða nýfædd í stað þess þegar þau eru fullorðin og geta varið sig. Í öðru lagi, af hverju ekki senda best terminatorana strax í stað þess að senda fyrst lélega, svo termiantor 2, og SVO terminator 3. og svo í 3. lagi, af hverju að senda 1 vélmenni, þegar þeir geta sent 3 til 1000?!?!?. þetta eru svona pælingar og hreint og beint nöldur.
When life hands you a lemon, squirt it in somebody's eye and run like hell.