Ég fór á Phone Booth í gær í Smárabíói og ég skemmti mér alveg konunglega. Colin Farrel er náttla frábær leikari og svo er þessi mynd spennandi og heldur manni við efnið allan tímann. En jæja, ég ætla ekki að segja margt sem gerist í myndinni. En einn aðalleikarann sjáum við ekki meira en helminginn af myndinni því hann er bara í símasambandi við Colin allan tímann. Ég ætla ekki að gefa upp nafn þess sem leikur hann en fólk þarf að uppgötva það á röddinni…. Já svo gerist myndin allan tímann í símaklefa og það kom mér á óvart hvað það tókst vel.
En ég allavega mæli ég með þessari mynd fyrir alla aldurshópa. Takk fyrir.
Hakuna Matata!