Fyrir u.þ.b. mánuði síðan sendi ég “grein” inn um Matrix:Reloaded. Greinin var að mestu innihald greinar sem ég fann á einhverjum korki á alnetinu. Brilliant grein. Ég tek það fram í byrjun greinar minnar að þetta sé tekið annars staðar fram og að ég vilji leyfa öðrum að njóta.
Aldrei kom greinin inn og 2 vikum eftir innsendingu þá sendi ég stjórnanda Azmodan skilaboð varðandi það.
Ekkert svar.
Ég man ekki á hvaða korki ég fann þessa grein upphaflega og ég á ekki afrit af þessum texta.
Ég veit að greinin barst inn því ég ræddi við Aquatopia á spjallrásum og hann las greinina stuttu eftir að ég sendi hana inn, en vildi ekki samþykkja hana þar sem hann er ekki stjórnandi á Kvikmynda áhugamálinu, sem er bara gott mál.
Þannig að greinin barst “eitthvað” eftir að ég ýtti á “senda” takkann og hvað á svo að gerast?
Ég er orðinn nett pirraður.
Kveðja para.