Eins og þið hér á huga vitið(vonandi)var DTS soundtrackið á Goldmember bilað.
Þetta lýsti sér þannig að á lagskiptunum ca 22:40 var eins og sountrackið byrjaði aftur á byrjun.
Ég er búinn að herja á þá hjá myndform í nokkurn tíma núna útaf þessu og viti menn.
Ég fékk Nýjan Disk!!!!!!
Soundið í góðu lagi ekkert vesen.
Þeir vissu af þessu og fengu nýja pressun af þessari mynd.
Þannig að nú er bara að fara í hafnarfjörðinn og fá nýjan.

Fékk mér annars 2 mjög góðar í síðustu viku.
Dances with Wolves Special Edition Region 1
og Battle of Britain Region 1
Mæli eindregið með báðum þessum diskum.