varðandi könnunina í dag (6.6) þá var ég að velta nokkru fyrir mér. Hvað flokkast undir gangstera mynd ?
Eru það allar bófamyndir, eða eru það svona mafíumyndir og svona skipulögð glæpastarfsemi?

Allavega finnst mér seinni skilgreiningin passa mun betur.
Og samkvæmt henni eiga margar myndir ekkert að vera þarna (þótt margar af þeim séu mjög góðar). T.d.

Taxi driver
Reservior dogs
Pulp fiction
The Man who wasn´t there

Hef ekki séð nærri því allar myndirnar þarna þannig að ég get ekki sagt hvort það eru fleiri þarna, en þetta er allavega það sem mér datt strax í hug.

Svo er líka annað, getur einhver bent mér á endurgerðina af Scarface. Hvaða mynd er það, fann ekkert um það á imdb.com
<br><br>——
Kv. Steini
“Nei nei, það er í lagi með mig, ég er bara krónískt freðinn.” ;)

Of course I'm home. I'm always home. I'm uncool.
<i>//Lester Bangs - Almost Famous</i
Kv, Steini