Þeir sem fylgst hafa með kvikmyndagerð í Hollywod, hafa eflaust tekið eftir áhuga Hollywood á teiknimyndahetjum. Blade, X-men og loks Batman. Nú eru í vinnslu einar 6-7 myndir sem munu koma á næstu 3 árum. Fyrst má telja X-men 2 og 3, Spider-man, Blade 2, Iron fist og Hulk. Aðrar myndir sem eru næstum því komnar af stað eru Ironman, Superman, Batman Beyond og Daredevil svo fáeinar séu nefndar.

En nýjust fréttir eru svolítið spennandi, það að Ang Li sé komin í hörkuviðræður um að leikstýra Hulk! Það er áhugavert, Upcomingmovies.com fullyrðir þetta. Og eitt sem Greg á Upcomingmovies má eiga að hann ólíkt 90% af kvikmyndasíðunum hefur oftast rétt fyrir sér. Spennandi!<BR
Kettir eru fremur viðkvæm dýr sem geta þjáðst af ýmsum kvillum. Ég hef þó aldrei vitað til þess að köttur ætti erfitt með svefn. Joseph Wood Krutch