Mér datt í hug að gera lista úr mest vitru persónunum sem alltaf koma með tilgang í lífið og segja hetjum hvað þær eiga að gera í kvikmyndunum:

1. Yoda:Starwars serían

Þessi græni kall kom með mörg ódauðleg heillaráð þótt hann þyrfti að fara í tíma í málfræði

2.Gandalfur:LOTR myndirnar

Þessi maður er ekta vitur persóna í bíómynd, sítt grátt skegg pírð augu og eldgamall. Kom með nokkrar vitrar setningar og hver veit nema að hann komi með fleiri í “Return of the king”.

3.Rottan í Turtles myndunum

Krakkar í Bandaríkjunum fóru meira að segja eftir sumum karate ráðunum og fóru ofan í holræsi í leit að rottunni á sínum tíma.
Allavega man ég ekki hvað hún hét, svo að endilega hressið uppá minnið mitt.

Jæja þetta heitir kannski ekki langur listi en tilgangurinn var að þið hin mynduð senda inn fleiri nöfn, svo að endilega gerið þið það.