Ég ætla nú ekkert að hafa þetta langt.
Ég er bara forvitinn kvikmyndaáhugamaður sem langar að vita hvað fólki finnst um hvaða leikarar hafa staðið upp í gegnum tíðina.

(Við ímyndum okkur að það sé verið að veita verðlaun fyrir besta leikara, leikkonu og leikstjóra allra tíma. Verðlaunin heita bara HOLLYWORLD.)

Svona verður þetta. Þið nefnið þann leikara, leikkonu og leikstjóra sem ykkur finnst eiga skilið að vera tilnefndur sem besti leikari/leikkona/leikstjóri allra tíma.

Ok allir fyrir framan tölvuna og tjáið ykkur. Stelpur ekki segja sætasta leikarann endilega og strákar engar gellur sem kunna ekkert að leika.