Ég er með frekar fjörugt ýmundunarafl og dreymir mér oft furðulega (mér dreymir oft að ég sé forsetinn t.d.).

Um daginn þá var ég búinn að sjá einhverja Matrix auglýsingu.
Um nóttina dreymdi mig þá að ég væri inni í einhverju iþróttahúsi og einhver ninja kona að elta mig. Ég læsti dyrunum með keðjum og taldi mig vera öruggann en nei, þá kom þessi ninja kona og sleit keðjuna með einu handtaki, ég hélt þá að það væri út um mig þegar ninja konan tók e-ð ninja kick á mig en ég varði mig og þá sagði ninja kona “aha, þú hefur greinilega lært matrix bardagalistina” og ég vissi ekki einu sinni hvað það var og hélt áfram að verja mig. Eftir nokkra stund þá tókst henni að yfirbuga mig og stakk einhverju stikki upp í mig sem átti að vera bara versti sársauki sem til er og hún sagði “haha, nú er út um þig hahaha!” en ég fann ekki fyrir neinum sársauka og ég sagði að ég findi ekki fyrir neinu og þá hætti ninja konan að ráðast á mig og sagði “omg, you are the one!”, ég var bara ha? Ég vissi ekkert hvað hún átti við og hún hætti að ráðast á mig og hyllti mig!

Þið skilduð þetta kannski ekki en þetta er einn furðulegasti draumur sem mér hefur dreymt!<br><br>“Á undarlegan hátt virtist sem boltinn hengi í loftinu enn lengur, þegar þetta
var endursýnt hægt.”
- David Acfield
Undirskriftin mín