Ég horfði á Bowling for Columbine í fyrradag, og þetta er ein af þeim myndum sem manni langar til að segja öllum frá.
Af og til á ævinni sér maður mynd sem spyr spurninga sem maður hélt að engin hefði þor í að spyrja, fjallar um málefni sem allir eru að hugsa um, en engin talar um (opinberlega) og síðast en ekki síst, í þessari heimildarmynd kemur maður sem breytir þeirri útbreiddu trú að allir bandaríkjamenn eru heimskir og trúgjarnir.

Eftir að hafa horft á þessa mynd færist ró yfir mann, loksins er komin mynd sem getur breytt hugsunarhætti heimsins (kannski smá öfgar). Núna mun fólk fara að hugsa sjálfstætt osfrv.

Áður en ég fer lengra hvet ég alla til að hrofa á þessa mynd, og þið sem eruð búin að því og eru sammála/ósammála mér, endilega komið með ykkar feedback…