Ég er ekki mikill aðdáandi hryllingsmynda, svo kannski er ekkert að marka þetta sem ég skrifa. En ég held það sé eitthvað alvarlega að mér. Því staðreyndin er sú að ég hlæ yfir hryllingsmyndum. Ég er farinn að taka meira og meira eftir þessu. Ég glápti á The Shining(snilld) um daginn, og þó að ég hafi verið drulluhræddur hló ég líka óstjórnlega mikið á pörtum. Þetta hefur komið fyrir áður á myndum einsog The Exorcist(hún var ekki alveg að virka, fannst þetta bara fyndið). En það sem ég er að spá er hvort fleiri gaurar/gellur séu þarna úti sem hafa hlegið yfir hryllingsmyndum?