Snilld, er sex stafa orð.

Uppáhaldsbíómyndin mín heitir Fight club. Hún er svo mikil snilld. Það er allt gott við hana. Hún er gerð eftir samnefndri skáldsögu sem Chuck palahniuk skrifaði. Mér finnst hann vera frábær rithöfundur. Tónlistin í Fight club er líka góð og myndatökurnar. Ég skil ekki fólk sem fílaði hana ekki.

Allavega er í vinnslu önnur mynd eftir bók sem palahniuk hefur skrifað. Hún heitir Survivor. Ég er að lesa bókina og ég get sagt ykkur að þetta er ekkert líkt Survivor þáttunum með fólkinu á eyðieyjunni. Ég vona að hún verði góð.

Fight club er uppáhaldsmyndin mín. Hver er ykkar?