Samkvæmt orðrómi er Wo-Ping að yfirgefa starf sitt sem slagsmálasérfræðingur í Matrix 2 og 3. Ástæðan er peningamál. Fyrir þá sem ekki vita hver maðurinn er þá sá hann um slagsmála atriðin í Matrix og gerði eina bestu slagsmála mynd fyrr og síðar “Fist of Legend” með Jet Li. Þessi maður er mjög mikilvægur ef Matrix 2 á að vera góð og því eru þetta slæmar fréttir. Annars hljóta þeir á endanum að borga honum mannsæmandi laun því ef einhver á heiður af velgengni Matrix(fyir utan Wakowski bræður) þá er það hann. <BR