Hvar hér í borg eru videoleigur sem brydda upp á þeirri nýjung að leigja DVD-diska til almúgamannsins? Ég veit að Laugarásvideó leigir þessa diska en eiga þó frekar takmarkað úrval ennþá (þ.e. síðast þegar ég leit við).

Er langt í að þetta verði almennt?

ps. eitt annað. Skilar afspilunarkort eitthvað betri gæðum í myndum en bara software? þe. ef tölvan manns ræður við það að keyra DVD myndir hnökralaust.