Mér finnst að það ætti að vera sér dálkur/hluti eða hvað það nú heitir um kvikmyndaleik eða bara leik yfir höfuð. Margir myndu heimsækja það og skoða.

En ég ætlaði ekki bara að tala um það. Mig langar að spekulera aðeins hver besti leikara Íslendinga er. Það er svolítið eins og að þ.s Ingvar E. er orðinn þekktastur erlendis þá sé hann endilega bestur. Ég myndi t.d. segja að það væri mjótt á mununum hjá honum og Hilmi Snæ. Vinur minn vill meina að Egill Ólafs sé besti leikarinn okkar. Hann geti leikið hvað sem er vel, það skipti ekki máli í hvaða hlutverk hann fari hann sé alltaf góður. En hvað með konurnar. Hver er besti kvenleikari Íslands?
Mig

p.s. þetta er ekki merkileg grein en mig langar bara að sjá samræður. Fyrirgefiði það en endilega, takið samt undir. Ræðum þetta aðeins.