Því miður þá get ég ekki hent inn
leikstjóra
leikurunum
screenwriter
o.s.f.r.
´
Ég var að enda við að horfa á mynd sem kallast því ofurmannslega nafni Donnie Darko, ég vissi ekki alveg við hverju ég átti að búast en skellti mér í stólinn og opnaði augun… Sá sko ekki eftir því shiiiiiiiit.

Myndin er Skrifuð og leikstýrð af sama manninum og það gerir bara gæfumuninn hér, öll skot eru í svo góðu zinki við söguþráðinn, leikurinn fer einnig snilldarvel við allar persónurnar, aðalsöguhetjan donnie er eins og skrifuð með þennan unga strák í huga. Allaveganna þá er þetta ein af þeim myndum sem skilur eitthvað eftir sig, líkt og Requiem, Pí o.s.f.r. Ekki furða að hún floppaði eitthvað í BNA, maður hugsar skemmtilega mikið eftir hana.

Allaveganna þá langaði mig bara að benda fólki á þessa mynd því hún er svo sannarlega þess virði að setjast niður fyrir framan og þar sem ég hafði aldrei heyrt um hana þá ákvað ég að pósta þessu hér.

P.s. hún er nýleg og ég veit ekki hvort hún sé kominn út hérna eða hvað…