Það er ekki hægt að segja annað en að þessi mynd lofar fjandi góðu, með núverandi tvo mestu töffara hvíta tjaldsins í aðalhlutverkunum og leikstjóra Sixth Sense + spennandi plott og drullu svalann trailer getur þessi mynd einfaldlega ekki klikkað. Ég og örugglega fleiri bíða spenntir eftir þessari sprengju og segir leikstjórinn M. Night Shyamalan að honum hafi örugglega tekist að gera betri mynd en Sixth Sense. Vá, þá er nú gaman og hefur eitthvað heyrst talað um Óskarinn í sambandi við hana þessa. Jah, við bíðum og sjáum til.