Þetta er þýtt úr grein sem ég fann á netinu..

Jæja, það hlaut að koma að því. Þeir hjá Warner bros hafa komist að þeirri niðurstöðu að best sé að kvikmyndin um Scooby doo eigi að vera sniðin sérstaklega fyrir börn. Búið er að klippa út öll atriði sem hafa bein eða óbein tengsl við eiturlyf og kynlíf, en þetta var eitt af því sem var oft ýjað að í teiknimyndaþáttunum, og er myndin í staðinn “sakleysisleg barnamynd”. “”Það var ákveðið (segir Matthew Lillard) að atriði, sem setja fram spurningar eins og; Er Velma samkynhneigð ? Er Shaggy í dópinu ? Eru Fred og Daphne að byrja saman ?, sem voru í upprunalegu útgáfunni en við komumst að þeirri niðurstöðu að
fara frekar í hina áttina… og það til að vera fjölskylduvænni.

Eitt atriði sem hefur verið klippt út er þegar Fred reynir að kjafta sig inn í hótelherbergið hennar Daphnear undir því yfirskini að vernda hana. Framleiðandi myndarinnar Charles Roven segir “Kvikmyndaeftirlitið gerði athugasemdir við það að hann hélt á tannburstanum sínum, og gaf þannig í skyn að hann ætlaði að eyða nóttinni hjá henni”. Einnig eru atriði þar sem gefið er í skyn að Velma sé í raun samkynhneigð klippt út auk atriðis þar sem Velma og Daphne kyssast á gamansaman hátt.

Því miður fyrir DVD aðdáendur þá munu þessi atriði ekki einu sinni birtast á disknum en áætlað er að diskurinn komi út fyrir næstu jól. Roven segir einnig "Warner bros yrðu að aðvara foreldra við PG-13 atriðum á disknum í annars PG skráðri mynd og það gæti haft áhrif á söluaðilla sem hafa fjölskyldustefnu.

Skömm segi ég!!











Þau viðhorf sem koma fram í þýðingunni hér að ofan kunna að stangast á við viðhorf greinarhöfundar!!!!
___________________________________________________