Jæja, þá kom að því…lélegasta mynd mannkynssögunnar hefur verið fundin!! Ókei, eftir að hafa séð trailerinn í bíó fyrir einhverjum tíma síðan þá verð ég að viðurkenna að mér leist alveg ágætlega á myndina - flottir bílar og flottar gellur. En í gær tók ég þá afdrifaríku ákvörðun að fara á þessa mynd og ég verð nú bara að segja að ég hef sjaldan séð eins mikið eftir þúsundkalli og í gærkvöldi. Ekki nóg með að myndin hafi verið byggð upp á útjaskaðri formúlu - heldur var hún byggð upp á lélegri formúlu. Í hléi hélt ég að myndin gæti ekki versnað, en viti menn - hún kom mér svona líka á óvart og versnaði til muna!! Leikurinn var vondur, plottið hallærislegt og nafnið á myndinni er náttúrulega það versta!!
Í guðanna bænum, eyðið peningunum ykkar frekar í eitthvað hressandi heldur en að eyða honum í viðbjóð sem þennan!!