Flest allir geta verið sammála um að Godfather, Lord of the Rings og Star Wars séu góðar myndir. En sumum hópum finnst myndirnar vera betri eða verri. Ég ætla að koma með smá upplýsingar um hvaða hópar finnst ákveðnar myndir góðar og pælingar um það.

Allar upplýsingar frá imdb.com

THE GODFATHER, PART 1
Konur: 8,7
Karlar: 9,1
Kemur ekki á óvart, Godfather er mun meiri karlamynd.

US Voters: 9,1
Non US Voters: 8,9
Bandaríkjamenn að fíla Godfather betur.

IMDb staff: 9,4
Konur undir 18: 7,7
Hæsta og lægsta gjöfin. IMDb- menn ættu að vita hvað þeir syngja en gelgjurnar ekki að fíla Godfather.

LORD OF THE RINGS: FELLOWSHIP OF THE RING
Karlar: 8,9
Konur: 9,2
Kom mér á óvart. Fleirri karlar en konur sem bókstaflega hata Lord of the Rings.

Undir 18: 9,2
18-29 ára: 9,0
30-44 ára: 8,9
45 og eldri: 8,5
Því yngra sem fólk er, því betri finnst þeim myndin. Ástæða….?

IMDb staff: 8,4
Konur undir 18: 9,3
Aftur sami hópur með hæsta og lægsta. Eruð þið að sjá mynstur í þessu…..?

STAR WARS: A NEW HOPE
Konur: 8,6
Karlar: 8,8
Mjög svipaðar skoðanir. Skiljanlegt að bæði kyn skuli fíla Star Wars

US Voters: 8,9
Non US Voters: 8,6
Aftur eru Bandaríkjamenn að gefa hærri einkannir. Þó ekkert mikið.

US Voters/Karlar 18-29/18-29: 8,9
Konur undir 18: 8,2
Gelgjurnar aftur að gefa lélega einkunn. Hinsvegar er Star Wars með allt í kringum 8.

Fleirri myndir seinna….ThorX
<B>Azure The Fat Monkey</B>